Hér verða auglýst væntanleg got og got sem eru í gangi sem Spitzhunda deildin mælir með. Einungis er hægt að auglýsa væntanlegt got sé búið að staðfesta það að tíkin sé hvolpafull. Got sem auglýst eru í Got í gangi verða höfð inni í 8 vikur, séu allir hvolparnir seldir fyrir þann tíma verður auglýsingin tekin út. Séu hvolpar óseldir eftir þessar 8 vikur er ræktanda bent á að senda inn nýja auglýsingu með upplýsingum um þá hvolpa sem eru óseldir. Vinsamlegast sendið okkur upplýsingar um foreldra, heilsufarsniðurstöður sem og niðurstöður sýninga og vinnuprófa (séu þær til staðar). Vert er að benda á að stjórn Spitzhunda deildar mælir eingöngu með gotum undan hundum sem uppfylla eftirfarandi skilyrði: Að farið sé eftir rækturnarreglum hverjar tegundar, mögulegar niðurstöður mjaðmamynda, augnskoðanir, sýningaárangur og fleira.
Hundar til sölu
Engir hundar til sölu eins og er.
Got í gangi
Hjá Tulta Ja Lunta Ræktun á Finnish Lapphund fæddust 6 hvolpar þann 5. Mai 2019. 2 Wolf Sable tíkur og 3 rakkar og 1 tík eru Black and Tan Allar upplýsingar gefur Lára: larawiley94@gmail.com Heimasíða ræktunar er www.Iceflappies.weebly.com
IsJCh IsCh RW-18 Snofyre Iconic Dancer Augu hrein Mjaðmir C
IsCh C.I.B NordCh FiCh DkCh SeCh NoCh EeCh LvCh LtCh BaltCh RuCh ItCh ByCh RKFV WW-14 Petäjämaan Viksu Augu hrein Mjaðmir A
Hjá Stefaníu Huld Evertsdóttir fæddust 5 Samoyed hvolpar þann 21. Mai 2019 2 tíkur og 3 rakkar Allar upplýsingar gefur Stefanía: stefania.huld@gmail.com
Norðurdals Frost Rose Augu Hrein B/C mjaðmir
RW-18, ISCH Let Me Steal Your Heart De Sanna Gourska Augu Hrein A mjaðmir 0 AD
Hjá Norðurdals ræktun fæddust 8 Samoyed hvolpar þann 2. mai 2019 7 Rakkar og 1 Tík Allar upplýsingar gefur Agnes: nordurdals@gmail.com Heimasíða ræktunar: www.nordurdals.com
RW-15, RW-18, ISCH Norðurdals I Have Seen The Rain Augu hrein D mjaðmir
RW-18, ISCH Let Me Steal Your Heart De Sanna Gourska Augu Hrein A mjaðmir 0 AD